Best í heimi
Sum augnablik eru eitthvað svo frábær þó að þau séu kannski
hversdagsleg. Í gærkvöldi upplifði ég eitt af þessum augnablikum
þegar ég var á rúntinum með syni mínum að hlusta á Cypress Hill í
botni og við vorum bæði að syngja með. Við skemmtum okkur bara
alveg ógeðslega vel og hlógum eins og vitleysingar. Á þessu
frekar viljað vera að gera á laugardagskvöldi eða neinn sem ég
hefði frekar viljað vera að tjútta með. Mér finnst bara best í
Allt að koma
Ég er ekkert búin að reykja í tíu daga og í gær fór ég út að
Vetrardvalanum lokið
Nú er gaman og allt að gerast.
La cité avec la mer
Sumarfríið er búið og hversdagsleikinn tekinn við en þrátt fyrir að
fríið hafi verið meiriháttar og alveg mátt vera aðeins
Síðan við komum aftur í borgina erum við Garpur bara búin að vera
vakna snemma. Garpur er ennþá í leikskólanum en byrjar í skólanum í
næstu viku og ég veit ekki hvort okkar er spenntara. Ég vildi að ég
væri jafn spennt fyrir mínum eigin skóla, sem að ég er búin að bíta
Þar sem að það er að koma haust er ég búin að setja mér alls konar
háleit markmið fyrir veturinn og eitt af þeim er að reyna að
er nefnilega búin að komast að því að það er blátt áfram
fyrir norðan er ég alltaf á ferðinni á milli Húsavíkur og Lauga
nágrenni Reykjavíkur og ekkert mál að skreppa eitthvað part úr
Um síðustu helgi fórum við til dæmis upp á Úlfljótsvatn í
þrítugsafmæli hjá Einari Elí sem vinnur með mér og það var algjör
snilld. Ég fór í vatnasafarí samkvæmt fyrirmælum sonar míns sem
sendi mig einnig upp margra metra háan klifurvegg og svo var
grillað og sungið við varðeld. Ég held að sé langt síðan ég hef
staðnum að það yrði ekki jafn langt þangað til að ég gerði það
næst. Reglulegar sveitaferðir eru því komnar á dagskrá og ef
af markmiðunum fyrir komandi vetur er að fara að sofa fyrir tvö að
Heima er sko best
Ferðin norður var frábær. Ég keyrði ein á aðfaranótt laugardags og
áður tekið eftir því hvað Ísland er hrikalega fallegt en kvöldsólin
og örlítil þoka gerði allt ótrúlega flott. Ég stoppaði uppi á miðri
mínútum eftir að ég lagði af stað aftur sá ég yrðling sem hafði
ákveðið að tylla sér á miðjum veginum en skokkaði af stað þegar ég
nálgaðist. Eftir það fór að birta meira og ég hækkaði útvarpið í
botn og söng hástöfum með alla leiðina heim sem er svolítið fyndið
ekki vel en það var enginn að hlusta svo mér var alveg
Þegar ég kom til Húsavíkur skreið ég uppí hjá uppáhalds stráknum
mínum af öllum, sem rumskaði aðeins, brosti út að eyrum og spurði
hvort ég hefði ekki örugglega munað eftir hjólinu og kóktöppunum
Síðustu dagar eru svo bara búnir að vera magnaðir. Ég er búin að
fara á ættarmót út í Flatey, fá mér hamborgara með Bjöggu og kaffi
með Yngva, sofa helling og fara í sumarbústaðinn með allri
Somewhere...
Ég er að fara í sumarfrí á föstudaginn og hlakka svo til. Ég ætla
að vera í heilan mánuð á Húsavík og finnst það bara alveg draumur.
botn og gera ekkert nema skemmtilegt. Tíhí.
Gaman saman
Við Garpur fórum út á Gróttu í dag í fjöruferð sem var virkilega
hressandi. Ég held að ég sé komin í sumarskap.
Allt í plati
Í gær var ég látin leita að froski í ísskápnum og þjófum í
fataskápnum. Það var gaman.
Fiskibollur í dós
Ég er ekki lengur með fiðrildi í maganum enda ekkert með fiðrildi
að gera. Ég ræð hins vegar ekkert við brosið á andlitinu á mér.
Skate or die
Við Garpur horfðum á hina frábæru mynd Lords of Dogtown um daginn
og erum sammála um að þetta sé skemmtilegasta mynd sem við höfum
séð. Eftir að hafa horft á myndina drógum við fram hjólabrettin
okkar og dustuðum af þeim rykið og nú eru stanslausar
hjólabrettaæfingar í litlu íbúðinni okkar sem ganga bara nokkuð
vel. Við höfum síðan ákveðið að eyða öllum frítíma okkar í sumar
Venjulega geri ég þær kröfur að það sé að minnsta kosti einn sætur
strákur í öllum myndum sem ég horfi á en í Lords of Dogtown eru
næstum því of margir sætir strákar sem ég vissi ekki að væri hægt
og ég varð bara hálf ringluð. Skemmtanagildi myndarinnar varð hins
vegar alveg rosalegt fyrir vikið. Ég hefði ekkert á móti því að
rekast á þó ekki væri nema einn svona strák svo ef að einhver
þekkir sæmilega stálpaðan síðhærðan hjólabrettagaur má alveg láta
mig vita.
Tíhí
Svona
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið
Gló magnaða
Ég er alveg ótrúlega hamingjusöm í dag. Það er einhvern veginn allt
eins og það á að vera. Garpur er geðveikt krútt, vinnan er frábær,
íbúðin mín er ótrúlega hrein og ég er ógeðslega sæt. Hvað getur
Þrír af skemmtilegustu dögum ársins eru framundan og ég ætla að
vera hin fullkomna húsmóðir og baka bollur á sunnudaginn og elda
saltkjöt og baunir á þriðjudaginn. Það er spurning hvort ég sauma
ekki bara búning á barnið mitt fyrst ég er að þessu á annað borð.
Uppáhalds bolludagurinn minn af öllum var samt fyrir fimm árum
síðan. Þá bjó ég með tveimur vinkonum mínum í Bólstaðahlíð og var
kasólétt. Ég ákvað að fyrst ég væri að verða mamma væri kominn tími
til að verða svolítið mömmuleg og bakaði bollur í fyrsta skipti.
Þar sem ég var stútfull af hormónum og létt manísk lét ég mér ekki
nægja að baka einfalda uppskrift heldur hafði hana fjórfalda.
Útkoman varð um það bil hundrað og tuttugu stórar og fullkomlega
lagaðar bollur sem ég bræddi súkkulaði ofaná og þeytti rjóma inní.
Vikuna á eftir lifðum við vinkonurnar í bolluhimnaríki og borðuðum
rjómabollur í hvert mál og buðum gestum í bollukaffi í tíma og
ótíma. Síðan þá hef ég látið einfalda eða tvöfalda uppskrift duga.
Ég er að fara á fréttavakt á laugardaginn og hlakka ótrúlega mikið
til því Ölli ætlar að koma suður og vinna með mér. Mér finnst
alltaf skemmtilegast í vinnunni þegar hann er að vinna með mér. Svo
verð ég með fyrsta Stuðið mitt á milli stríða á föstudaginn sem að
Síðasta helgi var mjög skemmtileg. Við Garpur höfðum það bara
ótrúlega kósí í hreinu íbúðinni á föstudagskvöldið, horfðum á vídeó
og borðuðum fullt af nammi. Á laugardagskvöldið fór Garpur svo til
ömmu sinnar og ég fór á stelputjútt með Tobbu. Við höfðum ekki
farið út saman síðan við vorum í Menntaskólanum á Akureyri og það
var dálítill heimavistarfílingur í okkur þegar við vorum að þvælast
á milli íbúða með föt og snyrtidót áður en við fórum í bæinn en hún
býr beint fyrir ofan mig. Við ætluðum síðan að fara á alla staðina
sem við förum venjulega ekki á og skoða strákana þar en af því að
var júróvisjónkvöld var bærinn troðfullur af fólki og raðir alls
staðar. Eftir að hafa verið í nokkrum röðum ákváðum við því bara að
fara á Ellefuna svo það varð eitthvað lítið úr skoðunarferðinni en
við reynum bara aftur seinna. Svo var konudagurinn á sunnudaginn og
ég fékk blóm af því tilefni í fyrsta skipti ever að mig minnir því
amma hans Garps hafði farið með hann og keypt fyrir hann rós til
Núna ætla ég hins vegar að fara að nota eitthvað af
húsmóðurhæfileikunum sem ég þykist hafa og elda eitthvað handa
barninu mínu. Að lokum vil ég þakka Sigga sérstaklega fyrir að vera
eina manneskjan sem kommentar á það sem ég skrifa því ef að hann
gerði það ekki væri þetta orðið neyðarlegt þar sem ég virðist ekki
eiga neina vini sem nenna að lesa bloggið mitt.
Gúrkutíð
Ég bakaði súkkulaðiköku handa syni mínum áðan sem er það lang besta
sem að hann veit. Ég er nýbúin að átta mig á því að þetta snýst
ekkert um það að kakan sé svona rosalega góð þó að hún sé það
reyndar alveg. Hann biður mig nefnilega oft um að baka þó að við
eigum fullt af nammi og öðrum kökum. Það sem að gerir það að verkum
að honum finnst kakan svona góð er bara það að ég eyði tíma í að
gera hana sérstaklega handa honum. Það er líka alveg þess virði að
eyða tíma í þetta því það er ótrúlega notalegt að sjá hvað honum
Garpur er byrjaður á enskunámskeiði í málaskólanum Mími og er búinn
að fara einu sinni. Foreldrarnir voru látnir bíða frammi en við
heyrðum samt þegar börnin voru látin kynna sig og telja á ensku sem
var mjög fyndið. Honum fannst rosalega gaman að vera byrjaður í
Við mæðginin fórum á vídeóleiguna um síðustu helgi og tókum
sitthvora myndina og þær hafa báðar setið dálítið í okkur síðan.
Garpur fékk eldgamla teiknimynd sem heitir Valhöll og er ótrúlega
góð. Ég hef á tilfinningunni að hann sé að snúast til ásatrúar
eftir að hafa séð hana því hann talar ekki um annað en Þór og Óðinn
síðan þá og spyr reglulega hvenær Þór verði næst reiður því hann
langar svo að fá þrumur og eldingar. Ég horfði hins vegar á mynd
sem heitir Lie with Me og hef eiginlega ekki getað hætt að hugsa um
hana. Ég held að hún verði að teljast athyglisverðasta mynd sem ég
Ég uppgötvaði vefsíðu um daginn sem heitir paperdollheaven.com en
þar er hægt að dunda sér við að klæða allar skærustu stjörnurnar í
mis ósmekkleg föt og skipta um háralit á þeim og svoleiðis. Það er
ótrúlegt hvað ég nenni að hanga yfir þessu á kvöldin þegar ég ætti
að vera löngu farin að sofa. Svo kemur blogthings.com lík sterk inn
eftir miðnætti en þar er hægt að taka persónuleikapróf endalaust.
Ég tók eitt um daginn sem átti að segja manni til um aldur og mér
til alls alls engrar furðu reyndist ég vera 23 ára. Þessu er ég
sjálf búin að reyna að halda fram síðan ég var 23 því mér finnst ég
ennþá ekki vera deginum eldri. Ég mæli líka eindregið með því að
allir taki prófið sem segir til um í hvernig nærbuxum maður er því
Annars er afskaplega lítið að frétta og ég er eiginlega á svona
tímabili þar sem ég lifi mun meira spennandi lífi í draumi en vöku.
Lífið getur hins vegar verið ósköp notalegt þó að það sé ekki
spennandi svo ég er alveg sátt.
Ullabjakk
fyrir mig. Það er alveg komið á hreint. Mér tókst reyndar að fara
einu sinni að sofa fyrir miðnætti í síðustu viku en grænmetisátið
gengur ekki alveg sem skyldi. Ég sýndi reyndar ágætis viðleitni í
þá átt og keypti ferskt salat um daginn sem að ég kom fyrir
framarlega í ísskápnum. Samt sem áður tókst mér að gleyma því og
Garpur dró það svo út um helgina og spurði hvort við ætluðum ekki
að borða það en þá var það orðið ónýtt. Ég reyndi svo að gera aðra
tilraun til grænmetisáts áðan og hitaði einhver spínatbuff frá
Grænum kosti í ofninum. Þau reyndust einfaldlega vera sá mesti
viðbjóður sem ég hef nokkurn tímann á ævi minni smakkað og þá tel
ég með York-borgarann sem var svo ógeðslegur að hann er orðinn að
þjóðsögu í minni fjölskyldu. Kvöldmatur númer eitt fór því bara í
ruslið en þar sem ofninn var heitur henti ég eplaskífum inn í hann
og þær voru hafðar í kvöldmat í staðinn. Héðan í frá ætla ég bara
að borða það sem mér finnst gott og hunsa algerlega hvort það er
hollt eða ekki. Hingað til hef ég allavega dafnað ágætlega þrátt
fyrir að fæðuhringurinn sem ég fer eftir skiptist í súkkulaði,
rautt kjöt, mjólk, kaffi og sígarettur. Ég borða náttúrulega ekki
sígaretturnar en þær eru eitt af því sem ég þarf nauðsynlega á að
Uppáhalds fréttin mín af okkur í dag er svo sú að við fáum að hafa
íbúðina fram á vor og ég er ótrúlega hamingjusöm að þurfa ekki að
Svo mæli ég með því að allir lesi hið æsispennandi Vinnuvélablað
sem fylgir Fréttablaðinu á morgun. Ég eyddi nefnilega öllum deginum
í gær uppi á Fréttablaði við að skrifa greinar og viðtöl í það
þrátt fyrir að hafa verið í Birtupartíi á laugardagskvöldið og vera