04.03.2007 18:59:32 / emilía

Best í heimi


Sum augnablik eru eitthvað svo frábær þó að þau séu kannski hversdagsleg. Í gærkvöldi upplifði ég eitt af þessum augnablikum þegar ég var á rúntinum með syni mínum að hlusta á Cypress Hill í botni og við vorum bæði að syngja með. Við skemmtum okkur bara alveg ógeðslega vel og hlógum eins og vitleysingar. Á þessu augnbliki gat ég ekki látið mér detta neitt í hug sem ég hefði frekar viljað vera að gera á laugardagskvöldi eða neinn sem ég hefði frekar viljað vera að tjútta með. Mér finnst bara best í heimi að vera mamma.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 11:40:41 / emilía

Allt að koma


Ég er ekkert búin að reykja í tíu daga og í gær fór ég út að hlaupa. Mér finnst ég vera geðveikt dugleg. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 00:33:19 / emilía

Vetrardvalanum lokið


Nú er gaman og allt að gerast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 23:02:24 / emilía

La cité avec la mer


Sumarfríið er búið og hversdagsleikinn tekinn við en þrátt fyrir að fríið hafi verið meiriháttar og alveg mátt vera aðeins lengra er hversdagsleikinn ósköp fallegur líka.

Síðan við komum aftur í borgina erum við Garpur bara búin að vera að koma okkur almennilega fyrir í íbúðinni og venjast því að vakna snemma. Garpur er ennþá í leikskólanum en byrjar í skólanum í næstu viku og ég veit ekki hvort okkar er spenntara. Ég vildi að ég væri jafn spennt fyrir mínum eigin skóla, sem að ég er búin að bíta í mig að reyna að klára í vetur, en áhuginn er ekkert að drepa mig. Það kemur samt kannski þegar ég er byrjuð.

Þar sem að það er að koma haust er ég búin að setja mér alls konar háleit markmið fyrir veturinn og eitt af þeim er að reyna að fara oftar út fyrir borgarmörkin í vetur en síðasta vetur. Ég er nefnilega búin að komast að því að það er blátt áfram mannskemmandi að húka inni í hundraðogeinum mánuðum saman og nauðsynlegt að komast út í náttúruna annað slagið. Þegar ég er fyrir norðan er ég alltaf á ferðinni á milli Húsavíkur og Lauga og sumarbústaðarins og það er ákveðin frelsistilfinning sem fylgir því að keyra úti í sveit sem að vonlaust er að finna á Miklubrautinni. Það er líka fullt af fallegum stöðum í nágrenni Reykjavíkur og ekkert mál að skreppa eitthvað part úr degi.

Um síðustu helgi fórum við til dæmis upp á Úlfljótsvatn í þrítugsafmæli hjá Einari Elí sem vinnur með mér og það var algjör snilld. Ég fór í vatnasafarí samkvæmt fyrirmælum sonar míns sem sendi mig einnig upp margra metra háan klifurvegg og svo var grillað og sungið við varðeld. Ég held að sé langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel hérna sunnanlands en ég ákvað þarna á staðnum að það yrði ekki jafn langt þangað til að ég gerði það næst. Reglulegar sveitaferðir eru því komnar á dagskrá og ef einhverjir vilja koma með þá vitið þið símanúmerið hjá mér.

Núna er hins vegar næst á dagskrá að skríða upp í rúm því eitt af markmiðunum fyrir komandi vetur er að fara að sofa fyrir tvö að minnsta kosti nokkrum sinnum í viku.

Góðar stundir.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 01:14:47 / emilía

Heima er sko best


Ferðin norður var frábær. Ég keyrði ein á aðfaranótt laugardags og það var nánast enginn á þjóðveginum nema ég. Ég hef aldrei áður tekið eftir því hvað Ísland er hrikalega fallegt en kvöldsólin og örlítil þoka gerði allt ótrúlega flott. Ég stoppaði uppi á miðri Öxnadalsheiði um miðja nótt í smá rigningarúða og fór aðeins út úr bílnum og naut þess bara að vera til. Svona fimm mínútum eftir að ég lagði af stað aftur sá ég yrðling sem hafði ákveðið að tylla sér á miðjum veginum en skokkaði af stað þegar ég nálgaðist. Eftir það fór að birta meira og ég hækkaði útvarpið í botn og söng hástöfum með alla leiðina heim sem er svolítið fyndið því þeir fáu sem hafa heyrt mig syngja vita að ég geri það ekki vel en það var enginn að hlusta svo mér var alveg sama.  

 
Þegar ég kom til Húsavíkur skreið ég uppí hjá uppáhalds stráknum mínum af öllum, sem rumskaði aðeins, brosti út að eyrum og spurði hvort ég hefði ekki örugglega munað eftir hjólinu og kóktöppunum áður en hann vafði handleggjunum utan um mig og sofnaði aftur.

Síðustu dagar eru svo bara búnir að vera magnaðir. Ég er búin að fara á ættarmót út í Flatey, fá mér hamborgara með Bjöggu og kaffi með Yngva, sofa helling og fara í sumarbústaðinn með allri fjölskyldunni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 11:51:54 / emilía

Somewhere...


Ég er að fara í sumarfrí á föstudaginn og hlakka svo til. Ég ætla að vera í heilan mánuð á Húsavík og finnst það bara alveg draumur. Ég hef aldrei áður átt sumarfrí svo ég ætla að njóta þess í botn og gera ekkert nema skemmtilegt. Tíhí.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 22:24:34 / emilía

Gaman saman


Við Garpur fórum út á Gróttu í dag í fjöruferð sem var virkilega hressandi. Ég held að ég sé komin í sumarskap.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 16:06:24 / emilía

Allt í plati


Í gær var ég látin leita að froski í ísskápnum og þjófum í fataskápnum. Það var gaman.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 19:45:11 / emilía

Fiskibollur í dós


Ég er ekki lengur með fiðrildi í maganum enda ekkert með fiðrildi að gera. Ég ræð hins vegar ekkert við brosið á andlitinu á mér. Sumir dagar eru bara betri en aðrir dagar. 

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 19:05:16 / emilía

Skate or die


Við Garpur horfðum á hina frábæru mynd Lords of Dogtown um daginn og erum sammála um að þetta sé skemmtilegasta mynd sem við höfum séð. Eftir að hafa horft á myndina drógum við fram hjólabrettin okkar og dustuðum af þeim rykið og nú eru stanslausar hjólabrettaæfingar í litlu íbúðinni okkar sem ganga bara nokkuð vel. Við höfum síðan ákveðið að eyða öllum frítíma okkar í sumar niðri á Ingólfstorgi sem verður örugglega bara stuð.

Venjulega geri ég þær kröfur að það sé að minnsta kosti einn sætur strákur í öllum myndum sem ég horfi á en í Lords of Dogtown eru næstum því of margir sætir strákar sem ég vissi ekki að væri hægt og ég varð bara hálf ringluð. Skemmtanagildi myndarinnar varð hins vegar alveg rosalegt fyrir vikið. Ég hefði ekkert á móti því að rekast á þó ekki væri nema einn svona strák svo ef að einhver þekkir sæmilega stálpaðan síðhærðan hjólabrettagaur má alveg láta mig vita.

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 22:55:20 / emilía

Tíhí


Ég er með lítið fiðrildi í maganum og bros sem ég ræð ekki við.
Það er gaman.


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 00:20:24 / emilía

Svona


Settu nafnið þitt í kommentakerfið og


1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mín af þér.
5. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt.


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 18:15:08 / emilía

Gló magnaða


Ég er alveg ótrúlega hamingjusöm í dag. Það er einhvern veginn allt eins og það á að vera. Garpur er geðveikt krútt, vinnan er frábær, íbúðin mín er ótrúlega hrein og ég er ógeðslega sæt. Hvað getur kona beðið um meira?

Þrír af skemmtilegustu dögum ársins eru framundan og ég ætla að vera hin fullkomna húsmóðir og baka bollur á sunnudaginn og elda saltkjöt og baunir á þriðjudaginn. Það er spurning hvort ég sauma ekki bara búning á barnið mitt fyrst ég er að þessu á annað borð.

Uppáhalds bolludagurinn minn af öllum var samt fyrir fimm árum síðan. Þá bjó ég með tveimur vinkonum mínum í Bólstaðahlíð og var kasólétt. Ég ákvað að fyrst ég væri að verða mamma væri kominn tími til að verða svolítið mömmuleg og bakaði bollur í fyrsta skipti. Þar sem ég var stútfull af hormónum og létt manísk lét ég mér ekki nægja að baka einfalda uppskrift heldur hafði hana fjórfalda. Útkoman varð um það bil hundrað og tuttugu stórar og fullkomlega lagaðar bollur sem ég bræddi súkkulaði ofaná og þeytti rjóma inní. Vikuna á eftir lifðum við vinkonurnar í bolluhimnaríki og borðuðum rjómabollur í hvert mál og buðum gestum í bollukaffi í tíma og ótíma. Síðan þá hef ég látið einfalda eða tvöfalda uppskrift duga.

Ég er að fara á fréttavakt á laugardaginn og hlakka ótrúlega mikið til því Ölli ætlar að koma suður og vinna með mér. Mér finnst alltaf skemmtilegast í vinnunni þegar hann er að vinna með mér. Svo verð ég með fyrsta Stuðið mitt á milli stríða á föstudaginn sem að er gaman líka.

Síðasta helgi var mjög skemmtileg. Við Garpur höfðum það bara ótrúlega kósí í hreinu íbúðinni á föstudagskvöldið, horfðum á vídeó og borðuðum fullt af nammi. Á laugardagskvöldið fór Garpur svo til ömmu sinnar og ég fór á stelputjútt með Tobbu. Við höfðum ekki farið út saman síðan við vorum í Menntaskólanum á Akureyri og það var dálítill heimavistarfílingur í okkur þegar við vorum að þvælast á milli íbúða með föt og snyrtidót áður en við fórum í bæinn en hún býr beint fyrir ofan mig. Við ætluðum síðan að fara á alla staðina sem við förum venjulega ekki á og skoða strákana þar en af því að var júróvisjónkvöld var bærinn troðfullur af fólki og raðir alls staðar. Eftir að hafa verið í nokkrum röðum ákváðum við því bara að fara á Ellefuna svo það varð eitthvað lítið úr skoðunarferðinni en við reynum bara aftur seinna. Svo var konudagurinn á sunnudaginn og ég fékk blóm af því tilefni í fyrsta skipti ever að mig minnir því amma hans Garps hafði farið með hann og keypt fyrir hann rós til þess að hann gæti gefið mér hana.

Núna ætla ég hins vegar að fara að nota eitthvað af húsmóðurhæfileikunum sem ég þykist hafa og elda eitthvað handa barninu mínu. Að lokum vil ég þakka Sigga sérstaklega fyrir að vera eina manneskjan sem kommentar á það sem ég skrifa því ef að hann gerði það ekki væri þetta orðið neyðarlegt þar sem ég virðist ekki eiga neina vini sem nenna að lesa bloggið mitt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 20:01:42 / emilía

Gúrkutíð


Ég bakaði súkkulaðiköku handa syni mínum áðan sem er það lang besta sem að hann veit. Ég er nýbúin að átta mig á því að þetta snýst ekkert um það að kakan sé svona rosalega góð þó að hún sé það reyndar alveg. Hann biður mig nefnilega oft um að baka þó að við eigum fullt af nammi og öðrum kökum. Það sem að gerir það að verkum að honum finnst kakan svona góð er bara það að ég eyði tíma í að gera hana sérstaklega handa honum. Það er líka alveg þess virði að eyða tíma í þetta því það er ótrúlega notalegt að sjá hvað honum líður vel á meðan hann borðar kökuna.

Garpur er byrjaður á enskunámskeiði í málaskólanum Mími og er búinn að fara einu sinni. Foreldrarnir voru látnir bíða frammi en við heyrðum samt þegar börnin voru látin kynna sig og telja á ensku sem var mjög fyndið. Honum fannst rosalega gaman að vera byrjaður í skóla en námskeiðið verður einu sinni í viku fram á vor.

Við mæðginin fórum á vídeóleiguna um síðustu helgi og tókum sitthvora myndina og þær hafa báðar setið dálítið í okkur síðan. Garpur fékk eldgamla teiknimynd sem heitir Valhöll og er ótrúlega góð. Ég hef á tilfinningunni að hann sé að snúast til ásatrúar eftir að hafa séð hana því hann talar ekki um annað en Þór og Óðinn síðan þá og spyr reglulega hvenær Þór verði næst reiður því hann langar svo að fá þrumur og eldingar. Ég horfði hins vegar á mynd sem heitir Lie with Me og hef eiginlega ekki getað hætt að hugsa um hana. Ég held að hún verði að teljast athyglisverðasta mynd sem ég hef séð síðan ég horfði á Garden State.

Ég uppgötvaði vefsíðu um daginn sem heitir paperdollheaven.com en þar er hægt að dunda sér við að klæða allar skærustu stjörnurnar í mis ósmekkleg föt og skipta um háralit á þeim og svoleiðis. Það er ótrúlegt hvað ég nenni að hanga yfir þessu á kvöldin þegar ég ætti að vera löngu farin að sofa. Svo kemur blogthings.com lík sterk inn eftir miðnætti en þar er hægt að taka persónuleikapróf endalaust. Ég tók eitt um daginn sem átti að segja manni til um aldur og mér til alls alls engrar furðu reyndist ég vera 23 ára. Þessu er ég sjálf búin að reyna að halda fram síðan ég var 23 því mér finnst ég ennþá ekki vera deginum eldri. Ég mæli líka eindregið með því að allir taki prófið sem segir til um í hvernig nærbuxum maður er því að það hefur komið upp um alla sem ég veit að hafa tekið það.

Annars er afskaplega lítið að frétta og ég er eiginlega á svona tímabili þar sem ég lifi mun meira spennandi lífi í draumi en vöku. Lífið getur hins vegar verið ósköp notalegt þó að það sé ekki spennandi svo ég er alveg sátt.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 19:31:03 / emilía

Ullabjakk


Heit eru ekki fyrir mig. Það er alveg komið á hreint. Mér tókst reyndar að fara einu sinni að sofa fyrir miðnætti í síðustu viku en grænmetisátið gengur ekki alveg sem skyldi. Ég sýndi reyndar ágætis viðleitni í þá átt og keypti ferskt salat um daginn sem að ég kom fyrir framarlega í ísskápnum. Samt sem áður tókst mér að gleyma því og Garpur dró það svo út um helgina og spurði hvort við ætluðum ekki að borða það en þá var það orðið ónýtt. Ég reyndi svo að gera aðra tilraun til grænmetisáts áðan og hitaði einhver spínatbuff frá Grænum kosti í ofninum. Þau reyndust einfaldlega vera sá mesti viðbjóður sem ég hef nokkurn tímann á ævi minni smakkað og þá tel ég með York-borgarann sem var svo ógeðslegur að hann er orðinn að þjóðsögu í minni fjölskyldu. Kvöldmatur númer eitt fór því bara í ruslið en þar sem ofninn var heitur henti ég eplaskífum inn í hann og þær voru hafðar í kvöldmat í staðinn. Héðan í frá ætla ég bara að borða það sem mér finnst gott og hunsa algerlega hvort það er hollt eða ekki. Hingað til hef ég allavega dafnað ágætlega þrátt fyrir að fæðuhringurinn sem ég fer eftir skiptist í súkkulaði, rautt kjöt, mjólk, kaffi og sígarettur. Ég borða náttúrulega ekki sígaretturnar en þær eru eitt af því sem ég þarf nauðsynlega á að halda til þess að þrífast eðlilega.

Uppáhalds fréttin mín af okkur í dag er svo sú að við fáum að hafa íbúðina fram á vor og ég er ótrúlega hamingjusöm að þurfa ekki að flytja því það er það lang leiðinlegast sem ég geri.

Svo mæli ég með því að allir lesi hið æsispennandi Vinnuvélablað sem fylgir Fréttablaðinu á morgun. Ég eyddi nefnilega öllum deginum í gær uppi á Fréttablaði við að skrifa greinar og viðtöl í það þrátt fyrir að hafa verið í Birtupartíi á laugardagskvöldið og vera tæplega sofin.
   

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Leitarbox